Ritröð safnrita með nótnalaglínur sérvaldrar tónlistar í anda alþýðusöngva og vasasöngbóka. Hver bók inniheldur 90-100 laglínur íslenskra og erlendra sönglaga fyrir einstaklings- eða samsöng og hljóðfæraleik á píanó, gítar, harmoníku eða önnur hljóðfæri.

Showing all 4 results

Jólasöngvar – Nótur

kr. 3.290
Jólasöngvar-Nótur inniheldur 93 af vinsælustu jólasöngvum á Íslandi - nótur, hljóma og grunntexta. Bókin skiptist í kaflana AÐVENTA - KRINGUM JÓLATRÉÐ - JÓLIN - ÁRAMÓT. Jólasöngvar-Nótur er bók fyrir hvern sem vill spila jólahljóma á gítar, harmoníku, hljómborð, píanó, sýlófón og fl. eða hvern þann sem vill syngja eða spila jólalaglínur á hvaða hljóðfæri sem er. Í bókinni eru sömu lög og röðun eins og í textabókinni (Jólasöngvar-Textar) svo bæði hljóðfæraleikarinn (með nótubókina) og söngfólkið (með textabókina) geti auðveldlega fylgst að. Lögin í bókinni - Heimildaskrá

Jólasöngvar – Textar

kr. 990
Jólasöngvar-Textar inniheldur 118 söngtexta við 93 af vinsælustu jólasöngvum á Íslandi. Bókin skiptist í kaflana AÐVENTA - KRINGUM JÓLATRÉÐ - JÓLIN - ÁRAMÓT. Jólasöngvar-Textar hentar einstaklega vel sem ódýr vasabók fyrir jólasöng í skólum, heimavið eða annars staðar. Í bókinni eru sömu lög og röðun eins og í nótnabókinni (Jólasöngvar-Nótur) svo bæði söngfólkið (með textabókina) og hljóðfæraleikarinn (með nótubókina) geti auðveldlega fylgst að. Fæst einnig hjá Tónastöðinni

Sígild sönglög – 1

kr. 3.290
100 íslenskir og erlendir "rútubílasöngvar" – nótur, hljómar og grunntextar. Bókin þykir henta einstaklega vel til að spila hljóma sönglaganna (gítar, harmonika, hljómborð o.s.frv.), syngja lagið eða spila það á hvaða hljóðfæri sem er. Innan á bókakápum eru öll gítar- og píanógrip sem nota þarf í bókinni ásamt skipan hljómatakka á harmóniku. Fæst einnig hjá Tónastöðinni

Sígild sönglög – 2

kr. 3.290
100 íslenskir og erlendir „rútubílasöngvar“ – nótur, hljómar og grunntextar. Bókin þykir henta einstaklega vel til að spila hljóma sönglaganna (gítar, harmonika, hljómborð o.s.frv.), syngja lagið eða spila það á hvaða hljóðfæri sem er. Innan á bókakápum eru öll gítar- og píanógrip sem nota þarf í bókinni ásamt skipan hljómatakka á harmóniku. Fæst einnig hjá Tónastöðinni