Nótuútgáfan - Söngbók.is

Gylfi Garðarsson
Sími: 840 0856
Netfang: songbok (hjá) songbok.is

Netverslun Nótuútgáfunnar

Söngbók.is er rafrænn vörulisti Nótuútgáfunnar þar sem viðskiptavinir geta á þægilegan máta skoðað og keypt vörur forlagsins á veraldarvefnum og fengið þær sendar heim.
Greiðsla fyrir pantanir í Söngbók.is geta verið með greiðslukorti, millifærslu eða póstkröfu. Sendingar eru afgreiddar með Íslandspósti.

Söng- og spilabækur síðan 1986

Söng- og spilabókina Sígild sönglög tók ég upprunalega saman árið 1986 og var hún gefin út það ár af forlaginu Svart á hvítu. Uppsetning bókarinnar var að öllu leyti unnin á einkatölvu (Desktop publishing). Var það byltingarkennd breyting frá nótnaritunarhandverki sem hafði staðið að mestu óbreytt um aldir. Þessi fyrsta gerð bókarinnar er ein af fyrstu nótnabókum í Evrópu sem var uppsett með einkatölvu.

Næstu árin kom ég að setningu og umbroti á smáum og stórum nótnaritum fyrir ýmsa aðila í nokkrum löndum svo sem söngbók danskra lýðháskóla (Højskolesangbogen) og sálmabók Aðventista (Sálmar og lofsöngvar). Árið 1994 hófst starfsemi Nótuútgáfunnar í þeim tilgangi að endurútgefa Sígild sönglög ásamt öðrum gerðum tónbóka og í kjölfarið komu frá forlaginu 6 rit með um 330 söngvum samtals. Árið 2007 tók Nótuútgáfan við útgáfu ritseríunnar „Í útileguna“ sem eru handhæg vasasöngbókarhefti með hljómum og gripum vinsælla sönglaga. Haustið 2010 gaf Nótuútgáfan út nótnahefti með lögunum úr söngleiknum Dísa ljósálfur og í desember 2011 kom Gleðibankabókin frá útgáfunni, með 24 Eurovision söngvum Íslands og tengdum fróðleik árin 1986-2011.