Sígild sönglög 1-2 Textar, nótur, hljómar, grip
Sígild sönglög bækurnar eru safnrit með lögum í anda svonefndra „rútubílasöngva“ og vasasöngbóka. Í hvorri bók eru laglínur 100 íslenskra og erlendra sönglaga fyrir einstaklings- eða samsöng og hljóðfæraleik á píanó, gítar, harmoniku eða önnur hljóðfæri. Bókstafahljómar eru yfir laginu, oftast í samræmi við frumheimild. Griptöflur fyrir gítar-, píanó- og harmoniku eru innan á bókarkápum. Í flestum tilfellum fylgja öll textaerindi laginu og fyrsta erindið aukalega undir nótum. Við mörg laganna er getið um uppruna svo sem erlent heiti lags og tilurðarsögu ásamt heimildatilvísunum (heimildir). Til að auðvelda leit að efni inniheldur efnisyfirlit beggja bóka heiti laga, upphöf, viðkvæði og atriðisorð úr báðum bókum (lagalisti).
Lagaval 1. heftis er miðað við fyrri hluta 20. aldar og þaðan af eldra efni ásamt örfáum yngri viðbótum – frá þjóðlögum til dægurlaga. Í 2. hefti er áhersla á sönglög áranna 1930-1960 með einstaka eldri og yngri viðbótum. Að hætti „rútubílasöngva“ er textaefnið fjölþætt svo sem ættjarðarljóð, amorsvísur, barnagælur, ferðavísur, drykkjuvísur og jólakvæði.
Efnisval, nótnasetning og umbrot: Gylfi Garðarsson
Nótuútgáfan – 1993/../2005 – ISBN 9979600438 – A5 – 125 bls. (nánar á Leitir.is)