Jólasöngvar – Textar
kr. 990
Jólasöngvar-Textar inniheldur 118 söngtexta við 93 af vinsælustu jólasöngvum á Íslandi.
Bókin skiptist í kaflana AÐVENTA – KRINGUM JÓLATRÉÐ – JÓLIN – ÁRAMÓT.
Jólasöngvar-Textar hentar einstaklega vel sem ódýr vasabók fyrir jólasöng í skólum, heimavið eða annars staðar.
Í bókinni eru sömu lög og röðun eins og í nótnabókinni (Jólasöngvar-Nótur) svo bæði söngfólkið (með textabókina) og hljóðfæraleikarinn (með nótubókina) geti auðveldlega fylgst að.
Fæst einnig hjá Tónastöðinni
Jólasöngvar – Textar / Nótur – Textar, nótur, hljómar (Innihald)
Bækurnar Jólasöngvar – Textar / Nótur eru samhæfð safnrit með sönglög jóla og áramóta flokkuð í AÐVENTU, JÓLADANSA, JÓLAHÁTÍÐ og ÁRAMÓT. Textabókin er hugsuð fyrir almennan söng en nótnabókin fyrir hljóðfæraleik og söngstjórn sömu laga. Bækurnar innihalda samhæft lagaval, númeraröð og kafla. Öll textaerindi og aukatextar eru í textabókinni en í nótnabókinni aðeins þau erindi sem pláss er fyrir. Laglínur 93 söngva með bókstafahljómum eru í nótnabókinni og eru 118 söngtextar við þau sömu lög í textabókinni. Við mörg laganna í nótnabókinni er getið um uppruna svo sem erlent heiti lags ásamt heimildatilvísunum. Heimildaskrá er aftast í nótnabókinni ásamt efnisyfirliti fyrir báðar bækur með lagaheitum, upphöfum, viðkvæðum og laganúmerum.
Efnisval og framsetning: Gylfi Garðarsson
Nótuútgáfan – 1996 – ISBN 9979921439 – A6 – 120 bls. (nánar á Leitir.is)
| Ritröð | Sígild sönglög |
|---|
