Söngdansar II
DELERÍUM BÚBÓNIS: Allt á okkar valdi • Ástardúett • Brestir og brak • Einu sinni á ágústkvöldi • Kátt er um jólin • Ljúflingshóll • Sérlegur sendiherra • Snjór og vítamín • Vikivaki
Frumútgáfa af 16 píanó- og hljómborðsútsetningum úr söngvaleikjunum Allra meina bót og Deleríum Búbónis eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni.
Magnús Ingimarsson gerði píanóútsetningar söngvanna í Allra meina bót auk dansins Vikivaka, sem Jón Múli skeytti inn í 10 ára afmælisuppfærslu Þjóðleikhúsins á Deleríum Búbónis 1968. Hljómborðsútsetning Carls Billich af söngvum Deleríum Búbónis er hér óbreytt frá hans hendi. Sú útsetning er í raun samandráttur fyrir litla leikhúshljómsveit í Mið-Evrópskum stíl sem Carl Billich hafði mikla reynslu af frá Austurríki.
Í söngnum Prólógus er lagið eftir Gísla Halldórsson leikara en það mátti ekki upplýsa meðan hann lifði.
Yfirfarið af Jóni Múla, Jónasi og Magnúsi 1996.
Eins og í Söngdönsum I eru nótuútsetningarnar hér með hljómabókstöfum yfir nótum og texta hvers söngs þannig að bókin nýtist einnig fyrir flest önnur hljómaspilshljóðfæri svo sem gítar og harmoníku.
Auðvelt er að nota bókina til söngs eða spils á laglínum söngvanna þar sem laglínan er að jafnaði efsta rödd í útsetningunum.
Höfundar: Jón Múli Árnason og Jónas Árnason Útsetningar: Magnús Ingimarsson og Carl Billich
Nótuútgáfan – 1996/2004 – ISBN 9979921412 – A4 – 37 bls. (nánar á Leitir.is)